Einar Árni Jóhannsson skrifaði í dag undir samning til þriggja ára sem þjálfari meistaraflokks Þórs í Þorlákshöfn í körfuknattleik karla.
Einar Árni tekur við liðinu af Benedikt Guðmundssyni sem stýrt hefur liðinu með góðum árangri undanfarin ár.
Einar Árni hefur þjálfað í Njarðvík undanfarin ár bæði meistaraflokk og nú síðast sem yfirþjálfari yngri flokka. Einnig hefur hann þjálfað yngri landslið KKÍ.
Samhliða ráðningu Einars Árna hefur verið samið við heimamenn í meistaraflokksliði Þórs. Baldur Þór var ráðinn sem styrktarþjálfari og aðstoðarþjálfari meistaraflokks. En einnig eru Grétar Ingi, Þorsteinn Már og Emil Karel tilbúnir í slaginn næsta vetur. Leikmenn í drengja- og unglingaflokki munu styrkja liðið.