Magnús Þór Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við körfuknattleikslið Keflavíkur en hann ólst upp hjá félaginu og lék með því árabil. Magnús lék Grindavík til byrja með á nýliðnu keppnistímabili en gekk síðan til liðs við Skallagrím sem féll úr deildinni.
Auk þess þá framlengdi Valur Orri Valsson samningi sínum við Keflavík-liðið til næstu þriggja ára. Sigurður Ingimundarson verður áfram þjálfari liðsins og hefur sér til fulltingis Einar Einarsson.