Unicaja Málaga sigraði Bilbao 94:93 eftir framlengdan leik í spænsku deildinni í körfubolta í dag.
Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfubolta, leikur með Malaga, en hann gerði 3 stig og tók eitt frákast á þeim átta mínútum sem hann spilaði.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var 82:82 og þurfti því að framlengja, en Unicaja Málaga hafði betur í framlengingunni.
Unicaja Málaga tekur því 3. sæti deildarinnar með 59 stig, en liðið mætir liði Laboral Kutxa Baskonia í átta liða úrslitunum en það lið hafnaði í sjötta sætinu