Jón og félagar í oddaleik

Jón Arnór Stefánsson gat ekki spilað í kvöld vegna bakmeiðsla.
Jón Arnór Stefánsson gat ekki spilað í kvöld vegna bakmeiðsla. mbl.is/Golli

Unicaja Málaga tapaði 108:83 gegn Laboral Kutxa í fjarveru Jóns Arnórs Stefánssonar, í 8-liða úrslitum spænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld.

Jón tognaði í baki í síðustu umferð deildarkeppninnar og var heldur ekki með í fyrsta leiknum í 8-liða úrslitunum. Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í morgun kvaðst hann vonast til að geta verið með í næsta leik, sem nú er ljóst að verður oddaleikur við Laboral Kutxa á mánudagskvöld.

Sigurliðið í einvíginu mætir stórliði Barcelona í undanúrslitum en Börsungar unnu FIATC Joventut öðru sinni í kvöld, 80:74, og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert