Hlynur hafði betur gegn Jakobi

Hlynur Bæringsson
Hlynur Bæringsson JOHN MACDOUGALL

Það var Íslendingaslagur í sænsku úrvalsdeildinni í körfunkattleik karla þegar Hlynur Bæringsson og félagar hans í Sundsvall Dragons og Borås með Jakob Örn Sigurðarson innanborðs leiddu saman hesta sína í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 92:73 Sundsvall Dragons í vil.

Leikurinn var liður í tíundu umferð deildarinnar, en Sundsvall Dragons gat jafnað Borås að stigum með sigri. Lokatölur í leiknum urðu 92:73 Sundsvall Dragons í vil.

Hlynur skoraði átta stig, tók 15 fráköst og gaf fimm stoðsendingar í leiknum á meðan Jakob Örn skoraði sjö stig, tók eitt frákast og gaf þrjár stoðsendingar.

Sundsvall Dragons og Borås hafa nú bæði unnið sjö leiki í deildinni og sitja í öðru og þriðja sæti deildainnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert