„Tökum alla sigra eins og staðan er núna“

Jóhann Árni Ólafsson spilaði vel fyrir Grindavík í kvöld þegar þeir sigruðu lið Stjörnunar, 78:65, í Dominos-deild karla í körfuknattleik í kvöld. Eftir leikinn er Grindavík í 7. - 9. sæti deildarinnar ásamt Snæfelli og Tindastól.

„Sterkt lið Stjörnunnar eða hvað sem það er, við tökum bara alla sigra eins og staðan okkar er núna. Tala nú ekki um sterkt lið sem er svona ofarlega í deildinni og vonandi er þetta eitthvað sem við getum byggt ofan á,“ sagði Jóhann við mbl.is eftir leikinn í kvöld

Jóhann sagði erlendan leikmann þeirra vera að komast í leikform og það hjálpaði liðinu svo sannarlega. Hann sagði sitt lið taka alla sigra þessa dagana en liðið slæst nú um sæti í úrslitakeppninni, aðeins tveimur árum eftir að hafa hampað þeim stóra.

Nánar er rætt við Jóhann í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert