NBA-meistararnir Golden State Warriors voru ekki í vandræðum með að slá Portland Trail Blazers út í úrslitakeppninni og unnu samtals 4:1. Toronto Raptors tók forystuna gegn Miami Heat í nótt.
Golden State vann fimmta leikinn gegn Portland á heimavelli í nótt 125:121. Klay Thompson skoraði 33 stig og Stephen Curry er farinn að beita sér á ný og gerði 29. Damon Lillard var með 28 fyrir Portland.
Golden State mætir annað hvort San Antonio eða Oklahoma í úrslitum Vesturdeildar.
Toronto er 3:2 yfir gegn Miami eftir heimasigur 99:91 í Kanada. DeMar DeRozan var stigahæstur með 34 stig en Dwayne Wade gerði 20 fyrir Miami.