Grindavík hefur gengið frá ráðningu á erlendum leikmanni fyrir komandi átök í Dominos-deild karla í körfuknattleik, en liðið hefur samið á ný við Earnest Lewis Clinch. Hann er öllum hnútum kunnugur í Grindavík.
Clinch, sem er bakvörður, lék með Grindavík tímabilið 2013-2014 og var bikarmeistari með liðinu það ár eftir sigur á KR. Síðan hann fór frá Grindavík hefur hann meðal annars spilað í Japan og hefur einnig verið með sína eigin körfuboltaþjálfun fyrir börn jafnt sem atvinnumenn í greininni.