Í bandarískum fjölmiðlum er nú velt upp þeirri spurningu hvort San Antonio Spurs muni láta einn sinn dýrasta leikmann fara í vetur.
San Antonio fékk í fyrra til sín LaMarcus Aldridge og er hann á mjög háum launum hjá félaginu. Ekki hefur það þótt virka vel fyrir San Antonio sem ætlaði sér stóra hluti á síðasta tímabili.
Nú hafa frekari breytingar orðið á leikmannhópnum. Goðsögnin Tim Duncan er hættur en Spánverjinn sigursæli Pau Gasol kominn í staðinn.
Sérfræðingar vestan hafs telja að San Antonio þurfi að huga betur að varnarleiknum og Aldridge verði líklega látinn fara en ekki er nefnt hver gæti komið í staðinn.
Ekki er efast um hæfileika Aldridge sem hefur fimm sinnum verið kosinn til að spila í Stjörnuleik NBA. Verði hann falur munu væntanlega mörg félög setja sig í samband við San Antonio.