Heil umferð er á dagskrá Dominos-deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld og eru forvitnilegir leikir á dagskrá.
Í Hafnarfirði mætast liðin sem spiluðu til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Snæfell heimsækir þá lið Hauka, en rimma þeirra síðasta vetur var æsileg þar sem Snæfell tryggði sér titilinn með sigri í oddaleik sem einmitt fór fram á Ásvöllum. Miklar breytingar hafa hins vegar orðið á liði Hauka á milli ára og er liðinu nú spáð næstneðsta sæti deildarinnar og þar með falli.
Í Grindavík er nágrannaslagur þegar nýliðar Njarðvíkur koma í heimsókn. Þá mæta hinir nýliðarnir hjá Skallagrími til Keflavíkur og Stjarnan og Valur mætast í Garðabænum. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15.