ÍR-ingar eiga fyrir höndum afar erfitt verkefni í kvöld þegar þeir taka á móti Tindastóli í 3. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta.
Karfan.is greinir frá því að Matthías Orri Sigurðarson missi af leiknum í kvöld vegna veikinda. Kristinn Marinósson glímir við smávægileg meiðsli og missir af leiknum, og Stefán Karel Torfason er á sjúkralistanum eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg í fyrsta leik tímabilsins.
Leikur ÍR og Tindastóls hefst kl. 19.15 en þá eru á dagskrá fjórir leikir.
Leikir kvöldsins:
KR - Grindavík
Þór Akureyri - Skallagrímur
Keflavík - Snæfell
ÍR - Tindastóll