Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur sagt samningi við Taylor Brown upp og er leikmaðurinn nú þegar farinn heim vegna persónulegra ástæðna. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Taylor Brown skoraði 21,4 stig, tók 4,8 fráköst og gaf 2,6 stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Snæfell.
Leit að nýjum leikmanni stendur yfir og er vonast til að þau mál klárist á næstu dögum, segir á vef Snæfells.