Jakob Örn Sigurðarson átti fínan leik fyrir Borås, sem tapaði naumlega, 86:80, fyrir Södertälje í sænsku 1. deildinni í körfubolta í dag.
Hann skoraði þá 16 stig, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar en það dugði ekki til sigurs.
Eftir leikinn er Borås í 3. sæti með ellefu sigra og átta töp.