Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, áttaði sig á því að leikurinn gegn Keflavík í kvöld var kannski ekki fallegasti körfuknattleikur sem liðin hafa sýnt í vetur en hann var ánægður með sigurinn og sagði hann mjög mikilvægan um þau slagsmál sem eru á toppi Dominos-deildar kvenna.
Snæfell vann 62:57 sigur á Keflavík í 21. umferð Dominos-deildar kvenna í kvöld.
Ingi sagði það alltaf gaman að vinna í Keflavík og að hann hafi fengið þá tilfinningu áður og vísaði líkast til í það þegar hann landaði þeim stóra með karlaliði Snæfells hér um árið.