Eins og að spila á móti krökkum

Finnur Jónsson þjálfari Skallagríms, var að sjálfsögðu ekki sáttur eftir 93:80 tap gegn Keflavík í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. Finnur sagði sína menn hafa verið litla í sér allt frá upphitun og til enda leiks.

Finnur sagði sóknarleik sinna manna hafa verið skelfilegur þetta kvöldið, lítið traust illa farið með sóknirnar. Finnur sagði sína menn þurfa að hysja upp um sig ef ekki ætti illa að enda.

Viðtalið má sjá í heild sinni í meðfylgjandi myndskeiði. 

Finnur Jónsson
Finnur Jónsson mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert