Curry og félagar á sigurbraut

State Warriors skoraði 32 stig fyrir Golden State.
State Warriors skoraði 32 stig fyrir Golden State. AFP

Golden State Warriors hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Golden State fagnaði sigri gegn Houston Rockets, 113:106, og var þetta áttund sigur liðsins í röð.

Stephen Curry skoraði 32 stig fyrir Golden State og Klay Thompson var með 25 stig en Golden State hefur unnið 60 leiki en tapað 14. James Harden náði 20. þreföldu tvennu sinni á leiktíðinni en hann skoraði 24 stig, tók 11 fráköst og gaf 13 stoðsendingar.

Úrslitin í nótt:

Brooklyn Nets - Philadelphia 101:106
Atlanta - Phoenix 95:91
Portland - Denver 122:113
Detroit - Miami 96:97
Houston - Golden State 106:113
LA Lakers - Washington

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert