Skúli B. Sigurðsson
Skallagrímskonur komu öllum á óvart öðrum en sjálfum sér og stálu heimavellinum af Keflavík í kvöld í þegar þær sigruðu 70:68 í fyrsta einvígisleik liðanna í undanúrslitunum um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik í Keflavík.
Keflavík hafði verið yfir í leiknum lengst af en Skallagrímur með Tavelyn Tillman í fararbroddi komst yfir í seinni hálfleik og lét þá forystu aldrei af hendi. Tillman var frábær í kvöld með 33 stig og varð að lokum banabiti þeirra Keflavíkurstúlkna. Hjá Keflavík var Emelía Ósk Gunnarsdóttir með 19 stig stigahæst.
Keflavík hafnaði í 2. sæti og Skallagrímur í 3. sæti Dominos-deildar í vetur. Snæfell vann Stjörnuna í fyrsta leiknum í hinu undanúrslitaeinvíginu í gærkvöld. Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin.
Keflavík | 68:70 | Skallagrímur | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
99. mín. skorar | ||||
Augnablik — sæki gögn... |