Íslenska stúlknalandsliðið í körfuknattleik skipað leikmönnum 16 ára og yngri þurfti að sætta sig við tap gegn því gríska í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Skopje í Makedóníu. Lokatölur urðu 59:30.
Sigurbjörg Eiríksdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með átta stig og Sigrún Ólafsdóttir skoraði sex. Íslenska liðið leikur gegn Svíþjóð í þriðja leik sínum í riðlinum á morgun.