Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfuknattleik, fór aftur mikinn með Star Hotshots á Filippseyjum þegar hann lék sinn annan leik með liðinu í dag í sigri gegn Kia Picanto, 128:81.
Kristófer skoraði 19 stig og tók 15 fráköst og var bæði stigahæstur og frákastahæstur í liðinu. Hann átti einnig stórleik í frumraun sinni með liðinu á dögunum þegar hann skoraði einnig mest og tók flest fráköst; 18 stig og 18 fráköst.
Star Hotshots er í sjöunda sæti deildarinnar af tólf liðum þegar ein umferð er eftir og er öruggt í úrslitakeppnina en þangað fara átta efstu liðin.