Öruggur sigur Stjörnunnar í Hólminum

Danielle Rodricuez var stigahæst í sigri Stjörnunnar gegn Snæfelli í …
Danielle Rodricuez var stigahæst í sigri Stjörnunnar gegn Snæfelli í dag. mbl.is/Golli

Stjarnan bar sigurorð af Snæfelli þegar liðin mættust í fyrsta leik fimmtu umferðar Dominos-deildar kvenna í körfubolta í Stykkishólmi í dag. Lokatölur í leiknum urðu 72:55 Stjörnunni í vil.

Danielle Rodriguez átti frábæran leik fyrir Stjörnunar, en hún var stigahæsti leikmaður liðsins með 31 stig. Danielle tók þar að auki 14 fráköst og gaf 12 stoðsendingar.

Kristen McCarthy var atkvæðamest í liði Snæfells með 17 stig, en hún var öflug í frákastabaráttunni og hirti 18 fráköst. Þá gaf Kristen einnig fimm stoðsendingar í leiknum.

Stjarnan komst upp að hlið Haukum á toppi deildarinnar, en liðin eru hvort um sig með átta stig. Haukar eiga þó leik til góða á Stjörnuna og getur endurheimt tveggja stiga forskot sitt með sigri gegn Breiðablik á miðvikudaginn kemur. 

Snæfell er hins vegar í fjórða til fimmta sæti deildarinnar, en liðið fjögur stig líkt og Skallagrímur sem á leik til góða á Snæfell. Skallagrímur mætir Keflavík í fimmtu umferð deildarinnar eftir slétta viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert