Embiid með 46 stig fyrir Philadelphiu

Joel Embiid leikmaður Philadelphia 76ers var funheitur í nótt.
Joel Embiid leikmaður Philadelphia 76ers var funheitur í nótt. AFP

Joel Embiid setti persónulegt met í stigaskorun í nótt þegar hann skoraði 46 stig fyrir Philadelphia 76ers í 115:109-sigri á LA Lakers í Kaliforníu í NBA-körfuboltanum í nótt.

Embiid gaf auk þess sjö stoðsendingar og varði sjö skot en slíkum tölum mun enginn hafa náð í treyju Philadelphiu síðan Julius Erving gerði það árið 1982 samkvæmt ESPN.

Brandon Ingram skoraði 26 stig og tók 11 fráköst fyrir Lakers en það dugði ekki til.

Atlanta Hawks setti félagsmet þegar það burstaði Sacramento Kings í Georgíu 126:80. Um er að ræða stærsta sigur liðsins í NBA.

Úrslit:


Atlanta Hawks - Sacramento Kings 126:80
Miami Heat - Washington Wizards 102:93
New York Knicks - Utah Jazz 106:101
Charlotte Hornets - Cleveland Cavaliers 107:115
Memphis Grizzlies - Indiana Pacers 113:116
Milwaukee Bucks - Detroit Pistons 99:95
Minnesota Timberwolves - San Antonio Spurs 98:86
New Orleans Pelicans - Toronto Raptors 116:125
Oklahoma City Thunder - Chicago Bulls 92:79
Portland Trail Blazers - Orlando Magic 99:94
Philadelphia 76ers - LA Lakers 115:109

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert