Landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson setti niður 10 stig í sex stiga sigri Castello á Leyma Coruna í B-deild spænska körfuboltans í kvöld þar sem lokatölur urðu 82:76.
Ægir Þór setti stigin 10 niður á 25 mínútum en hann tók einnig þrjú fráköst og átti fjórar stoðsendingar. Ægir Þór gat ekki tekið þátt í verkefni landsliðsins í körfuknattleik sem beið lægri hlut gegn Tékkum í kvöld vegna leiksins á Spáni í kvöld.
Castello hefur 5 sigra í 6. sæti deildarinnar.