Landsliðsmaðurinn frábær á Spáni

Jón Axel Guðmundsson lék vel þrátt fyrir tap.
Jón Axel Guðmundsson lék vel þrátt fyrir tap. Ljósmynd/FIBA

Landsliðsmanninum Jóni Axel Guðmundssyni verður ekki kennt um 15 stiga tap Alicante fyrir Tizona Burgos, 90:75, í næst efstu deild spænska körfuboltans í Burgos í dag. 

Jón Axel skoraði 23 stig, tók þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á 35 mínútum spiluðum. 

Alicante er í áttunda sæti deildarinnar með 43 stig. Tizona Burgos er í efsta sæti með 45 en engu munar á toppliðunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert