Átta lið berjast um eitt sæti

Lamar Morgan (t.v.) og félagar í ÍR höfnuðu í öðru …
Lamar Morgan (t.v.) og félagar í ÍR höfnuðu í öðru sæti í 1. deild og fara í úrslitakeppni um laust sæti í úrvalsdeild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Keppni í 1. deild karla í körfuknattleik lauk í kvöld með heilli umferð.

KR stóð uppi sem sigurvegari í deildinni og fer upp í úrvalsdeild en liðin átta í sætum tvö til níu munu keppast um að vinna sér inn eitt laust sæti í úrvalsdeild til viðbótar.

Ljóst er hvaða lið mætast í 1. umferð úrslitakeppninnar. Þarf að vinna þrjá leiki til að komast áfram í undanúrslit.

Úrslitakeppnin hefst þann 5. apríl næstkomandi.

Í 1. umferð hennar mætast:

ÍR – Selfoss

Fjölnir – ÍA

Sindri – Þróttur V.

Þór Ak. - Skallagrímur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert