Leggur skóna á hilluna

KR vann 1. deildina og tryggði sér sæti í úrvalsdeild …
KR vann 1. deildina og tryggði sér sæti í úrvalsdeild í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleiksmaðurinn Illugi Steingrímsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, aðeins 27 ára að aldri.

Karfan.is greinir frá, en Illugi lék á nýafstöðnu tímabili fyrir uppeldisfélagið KR og vann 1. deildina með liðinu í gærkvöldi.

Illugi Steingrímsson, lengst til hægri, fagnar sigrinum í gærkvöldi.
Illugi Steingrímsson, lengst til hægri, fagnar sigrinum í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stærstan hluta ferilsins lék hann með Val, frá 2014 til 2021, en einnig tvö ár með Ármanni frá 2021 til 2023 áður en Illugi samdi við uppeldisfélagið að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert