Níundi sigurleikurinn í röð

Fred VanVleet reynir að koma boltanum í körfuna í nótt.
Fred VanVleet reynir að koma boltanum í körfuna í nótt. AFP/Tim Warner

Houston Rockets er heitasta lið bandarísku NBA-deildar karla í körfuknattleik um þessar mundir. 

Liðið vann Portland Trail Blazers, 110:92, í Houston í nótt og þar með sinn níunda leik í röð. 

Hinn 22 ára gamli Jalen Green hefur farið á kostum undanfarið en hann var atkvæðamestur í liði Houston með 27 stig, sex fráköst og þrjár stoðsendingar. 

Þá tapaði Boston Celtics eftir níu sigurleiki í röð í nótt gegn Atlanta Hawks, 120:118. Þrátt fyrir tapið átti Jayson Tatum stórleik og skoraði 37 stig. Boston er enn með langbesta árangur deildarinnar. 

Önnur úrslit:

Cleveland Cavaliers - Charlotte Hornets 115:92
Tornoto Raptors - Brooklyn Nets 88:96
New York Knicks - Detroit Pistons 124:99
San Antonio Spurs - Phoenix Suns 104:102
Chicago Bulls - Washington Wizards 105:107
Utah Jazz - Dallas Mavericks 105:115
Denver Nuggets - Memphis Grizzlies 128:103
Sacramento Kings - Philadelphia 76ers 108:96
Los Angeles Clippers - Indiana Pacers 116:133

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert