Hætti aldrei að vera Íslendingur

„Ég hætti aldrei að vera Íslendingur, það heldur í mér lífinu, en ég viðurkenni það að ég hugsa á norsku og ég tala norskuna betur en íslenskuna eftir 22 ára búsetu í Noregi,“ segir Þórir Hergeirsson, aðstoðarþjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik.

Það eru miklar líkur á því að Noregur landi verðlaunum á Ólympíuleikunum en liðið er komið í undanúrslit eftir öruggan sigur gegn Svíum á mánudag.

Þórir var mjög líflegur á hliðarlínunni á meðan leikur Norðmanna og Svía fór fram. Hann gaf fyrirmæli um hitt og þetta, en Marit Breivik er aðalþjálfari liðsins.

„Okkar samstarf hófst árið 1994. Þá var ég þjálfari yngsta kvennalandsliðs Noregs og Marit var að taka við A-landsliði kvenna. Ég var með hennar starfsliði á ÓL í Sydney en þar var mitt hlutverk að leikgreina leiki Noregs og andstæðingana. Ég er að taka þátt í mínum fyrstu Ólympíuleikum sem aðstoðarþjálfari þar sem við „skitum á okkur“ á heimsmeistaramótinu árið 2003 í Króatíu og komumst ekki á ÓL í Aþenu,“ segir Þórir en hann er 44 ára gamall Selfyssingur.

Ætlaði að vera í 2-3 ár í burtu

„Ég fór til Noregs árið 1986, þá hafði ég fengið inngöngu í tvo íþróttakennaraskóla, á Laugarvatni og í Ósló í Noregi. Ég taldi það betra fyrir framhaldsmenntunina að fara beint til Noregs og ég sagði við móður mína að ég myndi vera í 2-3 ár í Noregi. Þau eru nú orðin 22 og ég á norska konu og saman eigum við þrjú börn á aldrinum 7, 13 og 15 ára. Það eru því litlar líkur á því að ég sé á heimleið.“

Þórir segir að hann hafi margoft farið í samningaviðræður við eiginkonuna um að flytja til Íslands. „Ég hef reynt það oftar en 10 sinnum, án árangurs. Þetta er allt erfiðara þegar börnin eru búin að festa rætur í því samfélagi sem við búum í. Ég sé ekki að við flytjum neitt úr þessu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert