Tvöfalt hjá Daníel og Margréti

Margrét, Daníel, Rakel og Bjarki.
Margrét, Daníel, Rakel og Bjarki.

Daníel Thomsen og Margrét Jóhannsdóttir úr TBR urðu í dag tvöfaldir Reykjavíkurmeistarar í badminton en mótinu lauk í dag.

Daníel sigraði í tvíliðaleik ásamt Bjarka Stefánssyni og í tvenndarleik með Margréti Jóhannsdóttir en þau lögðu Bjarka og Rakel Jóhannesdóttur í úrslitum, 21:16 og 21:10. Margrét varð einnig meistari í einliðaleik eftir 21:5 og 21:19 sigur á Söru Högnadóttur.

Atli Jóhannesson úr TBR varð Reykjavíkurmeistari í einliðaleik karla er hann vann í úrslitum Bjarka Stefánsson, TBR, 21:5 og 21:12. Daníel og Bjarki unnu Færeyingana Benjamin Gunnarstein og Nikolaj Gunnarstein í úrslitum tvíliðaleiksins, 18:21, 21:15 og 21:15. Rakel Jóhannesdóttir og Elín Þóra Elíasdóttir, TBR, urðu Reykjavíkurmeistarar í tvíliðaleik kvenna eftir að hafa sigrað í úrslitum Margréti Jóhannsdóttur og Söru Högnadóttur, TBR, 26:24 og 21:15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert