Keppni í skylmingum á Reykjavíkurleikunum fór fram í Skylmingamiðstöðinni á Laugardalsvelli um helgina. Sigurvegarar í fullorðinsflokkum voru þau Ragnar Sigurðsson og Aldís Edda Ingvarsdóttir. Í öðru sæti í karlaflokki var Robert Elís Villalobos og í því þriðja Guðjón Ingi Gestsson og Emil Ísleifur Sumarliðason. Í kvennaflokki var Freyja Sif Stefnisdóttir í öðru sæti og þær Vanya Dimova frá Búlgaríu og Giedre Razgute frá Litháen í þriðja sæti.
Einnig var keppt í unglingaflokkum á skylmingamótinu um helgina og voru sigurvegarar eftirfarandi:
Ungmenni 20 ára og yngri - Emil Ísleifur Sumarliðason
Unglingar 17 ára og yngri karlar - Andri Mateev
Unglingar 17 ára og yngri konur - Freyja Sif Stefnisdóttir
Unglingar 14 ára og yngri - Franklín Kristjánsson
Börn 11-12 ára - Alexander Viðar
Börn 10 ára og yngri - Tómas Kristjánsson