Ívar rétt á undan Jóni

Frá vinstri, Jón Ægir Sigmarsson, Ívar Ragnarsson og Jórunn Harðardóttir …
Frá vinstri, Jón Ægir Sigmarsson, Ívar Ragnarsson og Jórunn Harðardóttir með sín verðlaun. Ljósmynd/Sebastian Storgaard

Ívar Ragnarsson vann opin flokk fullorðna í keppni í loftskammbyssu á Reykjavíkurleikunum í dag. 

Ívar vann mótið með 233,4 stig en annar var Jón Ægir Sigmarsson með 232,2 stig. Á eftir þeim kom svo Jórunn Harðardóttir með 206,8 stig. 

Í opnum flokki unglinga sigraði Adam Ingi Höybe Franksson með 513 stig. Í öðru sæti var Óðinn Magnússon með 502 stig. Í þriðja sæti hafnaði svo Elfar Egill Ívarsson með 406 stig. 

Adam tók einnig þátt í opna flokki fullorðan og sló þar Íslandsmest unglinga með 117,2 stig. 

Frá vinstri, Elfar Egill Ívarsson, Adam Ingi Höybe Franksson, Elfar …
Frá vinstri, Elfar Egill Ívarsson, Adam Ingi Höybe Franksson, Elfar Egill Ívarsson. Ljósmynd/Sebastian Storgaard
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert