Alexander og Giedré fögnuðu sigri

Alexander Viðar og Giedré Razguté.
Alexander Viðar og Giedré Razguté. Ljósmynd/Sebastian Storgaard

Alexander Viðar og Giedré Razguté unnu til gullverðlauna í skylmingum á RIG sem fram fór í Skylmingamiðstöðinni í Laugardal dagana 27-28. janúar. Alls tóku 50 keppendur þátt. 

Keppni í kvennaflokki var æsispennandi. Í fyrri undanúrslitaleiknum mættust Giedré Razguté frá Litháen og  Þórdís Ylfa Viðarsdóttir sem Giedré vann 15:8. Í seinni undanúrslitum mættust Aldís Edda Ingvarsdóttir og Anna Edda Gunnarsdóttir Smith og vann Aldís Edda 15:6. 

Í úrslitum mættust því Giedré Razguté og Aldís Edda Ingvarsdóttir og Giedré vann, 15:10. 

Í úrslit í karlaflokki mættust Alexander Viðar og Gunnar Egill Ágústsson og vann Alexander 15:13 í spennandi bardaga. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Alexander Viðar vinnur Reykjavíkurleikana. 

 

Úrslit Reykjavik International Games í skylmingum

Karlar:  

  1. sæti             Alexander Viðar
  2. sæti             Gunnar Egill Ágústsson

3.-4. sæti         Kjartan Gunnsteinn Kjartansson og Magnús Matthíasson 

Konur: 

  1. sæti             Giedrė Razgutė, LTU
  2. sæti             Aldís Edda Íngvarsdóttir

3.-4. sæti         Anna Edda Gunnarsdóttir Smith og Þórdís Ylfa Viðarsdóttir 

Ungmenni (13-20 ára) 

  1. sæti             Ýmir Darri Hreinsson 
  2. sæti             Alexander Viðar

3.-4. sæti         Anna Edda Gunnarsdóttir Smith og Magnús Matthíasson 

Unglingar (13-17 ára) 

  1. sæti             Ýmir Darri Hreinsson
  2. sæti             Magnús Matthíasson

3.-4. sæti         Kjartan Gunnsteinn Kjartansson og Alfreð Ási Davíðsson 

Unglingar  (12-14 ára) 

  1. sæti             Kermit Konstanty Madej, POL
  2. sæti             Sif Snorradóttir

3.-4. sæti         Birta Guðrún Brynjarsdóttir og Hildur Arnþórsdóttir 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert