Eitt íslenskt par í undanúrslit

Daninn Salomon Thomasen stóð í ströngu.
Daninn Salomon Thomasen stóð í ströngu. Ljósmynd/Sebastian Storgaard

Drífa Harðardóttir og Kristófer Darri Finnsson eru komin í undanúrslit í tvenndarleik í badminton á Reykjavíkurleikunum.

Drífa og Kristófer sigruðu þau Ewen Stephen og Anne Hubscher, 2:1, eftir oddalotu. Stephen og Hubscher unnu fyrstu lotuna en íslenska parið vann aðra lotu 21:17 og þriðju lotu 21:12.

Arna Karen Jóhannsdóttir og Davíð Bjarni Björnsson eru úr leik eftir tap fyrir Mikkel Klinggård og Naja Abildgård frá Danmörku í átta liða úrslitum, 24:22 og 21:17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert