Lentu samdægurs og urðu meistarar

Verðlaunahafarnir í latíndönsum.
Verðlaunahafarnir í latíndönsum. Ljósmynd/ÍBR

Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi fögnuðu sigri í latíndönsum á Reykjavíkurleikunum í gær. Lentu þau á Íslandi í gær eftir keppni í Þýskalandi en það var ekki að sjá ferðaþreytu á dansparinu.

Elvar Kristinn Gapunay og Ásdís María Davíðsdóttir urðu í öðru sæti og danska parið Jason Tuxen og Hristina Delcheva varð í þriðja sæti. 

Í keppni í standard-dönsum unnu þau Dennis Aisenstadt og Emily Jakobsen frá Danmörku. Eden Ólafsson og Freyja Örk Sigurðardóttir fengu silfur og þau Guðjón Erik Ólafsson og Christa Hrönn Davíðsdóttir höfnuðu í þriðja sæti.  

Þrjú efstu pörin í standard-dönsum.
Þrjú efstu pörin í standard-dönsum. Ljósmynd/ÍBR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert