Síðasta vika gaf 130 laxa í Laxá á Ásum, samkvæmt vikulegum veiðitölum frá Landssambandi stangveiðifélaga, en þetta er afburðagóð veiði þar sem einungis er veitt á tvær stangir í ánni. Þetta gerir rúmlega níu laxa meðalveiði á dagsstöngina sem er besta meðalveiði á stöng sem þekkist í laxveiðiá hér á landi. Nú virðist áin vera að rísa upp aftur sem aflasælasta veiðiá landsins eftir lægð og brokkgenga veiði í kjölfar þess að gengið var of nærri laxastofninum á níunda áratugnum sem að margra mati var vegna óhóflegrar maðkaveiði. Nú hefur fluguveiði aðeins verið leyfð seinustu árin og mikið af laxi sleppt aftur. Alls er búið að veiða 331 lax það sem af er sumri. Að sögn leigutaka árinnar er mikill smálax í ánni, sem er í flottu ásigkomulagi, og ekki verður vart við örlaxa í afla veiðimanna. Heildarveiði í ánni í fyrra var 1.062 laxar sem eru 6,6 laxar á hverja dagsstöng miðað við 80 daga veiðitímabil.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |