Rífandi gangur er nú í veiðinni í Svalbarðsá, en á einungis fimm dögum veiddust þar alls 84 laxar á þrjár stangir. Samkvæmt upplýsingum frá veiðifélaginu Hreggnasa, sem er leigutaki í ánni, er stór hluti aflans stórlax.
Veiði hófst í Svalbarðsá, sem er dragá með upptök í Djúpárbotnum á Öxfirðingarétti, hinn 1. júlí síðastliðinn og hefur síðan þá verið veitt á tvær til þrjár stangir. Er áin nú óðum að nálgast 200 laxa múrinn sem verður að teljast ansi gott.
Áin er 37 kílómetra löng og fellur í Þistilfjörð. Hefur meðalveiði þar síðustu fimm ár verið um og yfir 400 laxar, en mest veiddist hins vegar árið 2011 þegar 573 löxum var landað.
Fínar göngur eru nú einnig í Laxá í Dölum, sem löngum hefur verið talin ein besta laxveiðiá landsins. Er þar veitt á fjórar til sex dagsstangir og spannar veiðisvæðið 25 kílómetra frá ósi að Sólheimafossi.
Nýjar tölur yfir veiði þaðan liggja ekki fyrir, en veiði er hins vegar sögð með ágætum. Hefur meðalveiði í ánni undanfarin tíu ár verið 1.030 laxar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |