Að sögn Jóhannesar Sigmarssonar, leigutaka Norðlingafljóts í Borgarfirði, er mjög góð veiði í ánni þessa daganna.
Fram kom að 297 laxar hefðu veiðst þessa vikuna á stangirnar fimm. Heildarveiðin væri þar með í kringum 550 laxa sem væri afbragðsveiði þegar litið er til þess að áin opnaði fyrir rúmum mánuði síðan. Það liti því vel út með framhaldið á veiðinni í sumar og haust.
Áin er um 17 kílómetrar á lengd með yfir 75 merkta veiðistaði, auk fjölda af minni stöðum sem geta gefið lax. Umhverfi árinnar þykir stórbrotið og veiðistaðir eru afar fjölbreyttir.
Jóhannes sagði að veitt væri jöfnum höndum á maðk og flugu en óheimilt væri að veiða á spún. Uppistaðan í veiðinni í sumar væri vænn smálax en nokkrir stórir væru einnig inn á milli og væru þeir stærstu 96 og 93 cm langir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |