Verðbólgan fer vaxandi á ný

Verðbólga er enn talsverð, m.a. vegna hækkandi fasteignaverðs.
Verðbólga er enn talsverð, m.a. vegna hækkandi fasteignaverðs.

Vísitala neysluverðs í október hækkaði um 0,51% frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,36% frá september. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,3%. Árshækkunin í september var 4,2%. Greiningardeildir bankanna spáðu því að vísitalan myndi hækka um 0,5-0,8% milli september og október.

Hagstofan segir, að kostnaður vegna eigin húsnæðis hafi aukist um 0,8%, vísitöluáhrif 0,16%, en þar af voru 0,1% áhrif vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis og 0,06% vegna hækkunar vaxta.

Þá er sumarútsölum nú víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,5% (0,15%). Þá hækkaði verð matar og drykkjarvöru um 1,0% (0,12%).

Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 6,3% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% sem jafngildir 7,7% verðbólgu á ári (4,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK