Geysir Green eykur hlut sinn í Enex

Geysir Green Energy
Geysir Green Energy

Geysir Green Energy (GGE) og Landsvirkjun hafa undirritað samkomulag um kaup þess fyrrnefnda á 24,35% hlut Landsvirkjunar í Enex. Eftir kaupin á GGE um 70% í Enex og eftir fyrirhugaðan samruna Reykjavik Energy Invest (REI) og GGE mun sameinað félag ráða yfir um 97% hlutafjár í Enex. Stefnt er að því að samþætta starfsemi Enex við sameinað félag GGE og REI.

Í tilkynningu kemur fram að kaupverð hlutar Landsvirkjunar er 996 milljónir króna og að helmingshlut greiddur í reiðufé og helmingur með hlutafé í Geysi Green Energy. Við fyrirhugaðan samruna GEE og REI mun Landsvirkjun eignast hlut í REI á genginu 2,77, sem jafngildir helming af kaupverðinu. Landsvirkjun hefur síðan rétt til að selja bréf sín í REI eftir sex mánuði á sama gengi. Eins og áður hefur verið tilkynnt er sá samruni háður ákveðnum skilyrðum, m.a. samþykki samkeppnisyfirvalda. Ef skilyrði samrunans eru ekki uppfyllt munu seljendur fá söluverðið greitt að fullu í reiðufé.

Þá hefur GGE einnig keypt 2% hlut Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen í félaginu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK