Útlit fyrir frekara tap hjá Freddie Mac

Reuters

Forstjóri Freddie Mac, bandarísks húsnæðislánasjóðs sem er að hluta til fjármagnaður með opinberu fé og er annar af tveimur stærstu íbúðalánasjóðum landsins, segir að sjóðurinn muni tapa á næstu árum 5,5-7,5 milljörðum dala til viðbótar við það sem hann hefur þegar tapað.  Freddie Mac hefur þegar afskrifað um 4,5 milljörðum dala vegna erfiðleikanna sem ríkja á bandarískum húsnæðislánamarkaði.

Telur hann að ástandið eigi eftir að versna á húsnæðislánamarkaði sem og gjaldþrotum eigi einnig eftir að fjölga.

„Ég held í hreinskilni að ástandið eigi eftir að versna enn frekar áður en það batnar á ný," sagði Richard Syron, forstjóri og stjórnarformaður Freddie Mac á fundi með greiningaraðilum í New York í dag. Hlutabréf Freddie Mac lækkuðu um 6% í kjölfar orða hans í Kauphöllinni í New York.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK