Viðskipti
| mbl
| 30.5.2008
| 10:05
Sameiningaviðræðum haldið áfram
Kaupþing og SPRON hafa átt í viðræðum um mögulega sameiningu félaganna síðastliðnar 4 vikur. Niðurstöður hafa ekki fengist innan þess tíma eins og stefnt var að en viðræður eru enn í fullum gangi.<p>
Gerð verður grein fyrir niðurstöðum þeirra eins fljótt og mögulegt er.<p> Sameining félaganna er háð samþykki hluthafafundar SPRON, stjórnar Kaupþings, Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og lánveitenda félaganna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















