Aukinn vöruskiptahalli í júlí

mbl.is/ÞÖK

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,1 milljarð króna og inn fyrir 51,6 milljarða króna fob (55,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,5 milljarða króna. Í júlí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,6 milljarða króna á sama gengi.

Vöruskiptin hagstæðari fyrstu 7 mánuði ársins en á sama tíma í fyrra

Fyrstu sjö mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 241 milljarð króna en inn fyrir 282,8 milljarða króna fob (307,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 41,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 65,0 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.
 
Mest aukning í útflutningi á áli

Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 27,8 milljörðum eða 13,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,8% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum eða 1,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK