Kaupþing óskar eftir greiðslustöðvun í Bandaríkjunum

Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún.
Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún. mbl.is/Golli

Kaupþing banki hf. hefur óskað eftir greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Kaupþing hefur lagði fram beiðnina í gjaldþrotarétti í New York. Fréttavefur Reuters greinir frá þessu.

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Kaupþingi banka heimild til greiðslustöðvunar á Íslandi 24. nóvember sl. og gildir hún til 13. febrúar. Ólafur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun.

Þar segir að heildarverðmæti eigna Kaupþings nemi um 14,8 milljörðum dala, þar af nemi eignir bankans í Bandaríkjunum 222 milljónum dala. Fram kemur á vef Reuters að heildarskuldirnar nemi 26 milljörðum dala. 

Haft er eftir Ólafi að unnið sé að því að bankinn geti orðið við kröfum allra lánardrottna. Reynt sé að vernda eignir bankans svo þær falli ekki í verði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK