Olíuverð ekki lægra í 3 ár

Miðlarar á hrávörumarkaði í New York.
Miðlarar á hrávörumarkaði í New York. Reuters

Verð á olíu lækkaði í viðskiptum í Asíu í nótt eftir að fleiri slæmar efnahagsfréttir bárust frá Bandaríkjunum. Er nú talið, að verðið kunni að fara niður fyrir 40 dali fyrir lok ársins en olíuverð fór hæst í rúma 147 dali tunnan í júlí.

Verð á olíutunnu, sem afhent verður í janúar, lækkaði um 88 sent í rafrænum viðskiptum á markaði í New York og var verðið 45,91 dalur. Hefur verð ekki verið lægra frá því í febrúar 2005.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK