Bean segir bata á næsta leyti

Englandsbanki í London.
Englandsbanki í London. TOBY MELVILLE

Aðstoðarbankastjóri Englandsbanka telur að efnahagsástandið í Bretlandi muni byrja að lagast á seinni hluta þessa árs, þegar vaxtalækkanir að undanförnu verða farnar að skila sér út í allt lánakerfið. Svo skemmtilega vill til að bankastjórinn heitir herra Bean, eða herra Charles Bean.

Samtök iðnaðarins í Bretlandi hafa spáð því að verg landsframleiðsla í landinu muni dragast saman um 3,3% á þessu ári. Bean sagði á fundi landssamtaka breskra bænda hins vefar að skilyrði séu engu að síður að myndast fyrir hagkerfið til að ná sér á strik síðar á þessu ári. Slíkt sé nú þegar í pípunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK