Krónan veiktist mikið í dag eða um 2,09%. Gengisvísitalan er nú 205,1 stig en krónan hefur veikst mikið undanfarnar vikur. Bandaríkjadalur er 116,71 króna, pundið 170,25 krónur, evran 158,17 krónur og danska krónan 21,23 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.