Krónan styrkist um 1,41%

Ný lög Alþingis virðast hafa jákvæð áhrif.
Ný lög Alþingis virðast hafa jákvæð áhrif. mbl.is/Júlíus

Krónan hefur styrkst um 1,41% það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.

Samkvæmt upplýsingum frá bankanum hafa bein áhrif nýrrar gjaldeyrislöggjafar ekki skilað sér ennþá en lagasetningin virðist hafa eflt tiltrú markaðarins á gjaldmiðlinum, sem hefur leitt til áðurnefndrar styrkingar. Með öðrum orðum hafa eigendur gjaldeyris selt gjaldeyri í nokkrum mæli.

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um hert gjaldeyrishöft sem Alþingi samþykkti í gær gerir m.a. ráð fyrir því, að útflutningsviðskipti vöru og þjónustu skuli fara fram í erlendum gjaldmiðli. Í greinargerð með frumvarpinu segir, að gengi íslensku krónunnar hafi farið lækkandi síðustu vikur og séu sterkar vísbendingar um að því markmiði með skilaskyldu á gjaldeyri að byggja upp gjaldeyrisforða vegna útflutningstekna, verði ekki náð þar sem aðilar séu ekki skuldbundnir til að selja útflutningsafurðir í erlendum gjaldmiðli.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK