Ekkert fellur á skattgreiðendur vegna Þýskalands

Kaupthing Edge auglýsti betri vexti en keppinautarnir.
Kaupthing Edge auglýsti betri vexti en keppinautarnir.

Skilanefnd Kaupþings hefur tryggt fjármagn til að greiða út innistæður Kaupthing Edge í Þýskalandi að fullu, samkvæmt frétt frá Kaupþingi. Engar skuldbindingar vegna Kaupthing Edge munu því lenda á íslenskum skattgreiðendum.

Um 30 þúsund sparifjáreigendur í Þýskalandi munu fá innistæður sínar í netbankanum Edge greiddar. Upphæðin er nálægt 330 milljónum evra eða rúmlega 55 milljörðum íslenskra króna. 

Í fréttinni segir að skilanefnd Kaupþings banka hafi lagt ríka áherslu á að greiða allar forgangskröfur til sparifjáreigenda. „Með endurgreiðslu innistæðna í Edge útibúi Kaupþings í Þýskalandi lýkur endurgreiðslu til allra sparifjáreigenda útibúa Kaupþings erlendis, en slíkum greiðslum er þegar lokið í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki.

Skilanefndin hefur frá því í haust unnið hörðum höndum að því að tryggja verðmæti eignasafns bankans og nú er ljóst að innistæðurnar verða greiddar af bankanum og því munu engar kröfur sparifjáreigenda Kaupthing Edge falla á íslenska ríkið eða íslenska skattgreiðendur. Endurgreiðsla innistæðna mun fara fram þrátt fyrir að þýski bankinn DZ Bank AG hafi fryst 55 milljónir evra af innistæðum sparifjáreigenda Kaupthing Edge sem ætlaðar voru til að greiða út innistæður. Bankinn vinnur nú að tæknilegri útfærslu á greiðslu innistæðnanna í góðri samvinnu við yfirvöld í Þýskalandi,“ segir m.a. í frétt Kaupþings.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK