Bakkavör í vanskilum

Stjórnarformaðurinn og forstjórinn, Ágúst og Lýður Guðmundssynir.
Stjórnarformaðurinn og forstjórinn, Ágúst og Lýður Guðmundssynir. Skapti Hallgrímsson

Bakkavör getur ekki greitt til baka 20 milljarða króna lán, sem féll á gjalddaga í dag. Lánið var í formi skuldabréf og samanstendur af höfuðstól, vöxtum og verðbótum. Verið er að semja við eigendur skuldabréfanna um að framlengja gjalddaganum.

„Frá 9. desember 2008 hefur félagið tilkynnt að það eigi í viðræðum við skuldabréfaeigendur í þeim tilgangi að framlengja gjalddaga á skuldabréfum félagsins sem skráð eru í Kauphöllinni, NASDAQ OMX Iceland.

Félagið á í viðræðum við stærstu skuldabréfaeigendur varðandi framlengingu bréfanna. Félagið mun hins vegar ekki geta staðið skil á skuldabréfaflokki BAKK 03 1 sem er á gjalddaga í dag, 15. maí. Stjórn félagsins er hins vegar fullviss um að viðræðurnar muni skila árangri og að gjalddagi skuldabréfanna fáist framlengdur. Félagið mun upplýsa um gang viðræðna eins og kostur er.

Félagið tilkynnti 31. mars að það hefði tryggt fjármögnun allra rekstrarfélaga samstæðunnar til næstu þriggja ára eða fram til 30. mars 2012. Þessir samningar tryggja félaginu fullnægjandi rekstrarfjármögnun á tímabilinu og sýna jafnframt tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar,“ segir í tilkynningu frá Bakkavör sem birt var eftir lokun markaða í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK