Bandaríkjadalur nálgast 130 krónur

Hver Bandaríkjadalur er á 129,20 krónur
Hver Bandaríkjadalur er á 129,20 krónur Reuters

Gengi krónunnar hefur veikst um 0,25% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan í 234,55 stigum. Gengi krónunnar veiktist um tæpt 1% í gær og var dagslokagildi krónunnar það lægsta á árinu í lok dags í gær.

Bandaríkjadalur nálgast 130 krónur en hann er 129,20 krónur, pundið er 212,16 krónur, evran er 182,50 krónur en var í 178,4 á föstudaginn. Lækkun krónunnar gagnvart evrunni nemur því 2,3% á þessum fjórum dögum. Danska krónan 24,52 krónur og japanska jenið 1,3705 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.

Er þetta fjórði dagurinn í röð sem gengi krónunnar lækkar, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

„ Seðlabankinn hefur verið lítið inni á markaðinum í þessum mánuði og einungis einu sinni gripið inn í hann með sölu á gjaldeyri. Til samanburðar greip bankinn tíu sinnum inn í markaðinn í júlí og nítján sinnum í júní.

Erfitt er að lesa í þessa breyttu hegðun Seðlabankans en hugsanlega telur bankinn lækkun krónunnar síðustu daga vera litla ógn við stöðugleika krónunnar og/eða að hann er að spara gjaldeyriforðan núna þegar óvissa er nokkur um frekari uppbyggingu hans með erlendum lántökum," að því er fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK