Raunlækkun fasteignaverðs 36%

Frá því að húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu náði toppi í byrjun síðasta árs hefur það lækkað um 12,2% að nafnvirði og um tæplega 36% að raunvirði. Í nýlegri úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á því hve mikil húsnæðisverðslækkunin hefur verið í einstökum löndum kemur í ljós að lækkunin hefur verið með því mesta hér að raunvirði, að því er fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

Samanburðurinn tekur til 52 landa og er lækkunin mæld frá fyrsta fjórðungi 2008 til fyrsta fjórðungs 2009. Lækkunin hér er sú fimmta mesta á meðal þessara landa en meiri hefur lækkunin verið í Lettlandi (57%), Eistlandi (36%), Sameinuðu furstadæmunum (35%) og Litháen (26%). Að meðaltali lækkaði raunverð íbúðarhúsnæðis um 7% í þessum 52 löndum á þessu eina ári en nú virðist botninn vera kominn í húsnæðislækkununum víða, samkvæmt Morgunkorni.

„Frá því að bólan á íbúðamarkaðinum náði hámarki í ársbyrjun 2008 hér á landi hafa íbúðir í fjölbýli lækkað um 12,3% og íbúðir í sérbýli um 9,7%. Mun meiri velta hefur verið á íbúðamarkaði með íbúðir í fjölbýli sem skýrir mismunandi verðmyndun. Í árferði líkt og því sem nú ríkir eru það aðallega litlar fjölbýlisíbúðir sem ganga sölum og kaupum á meðan stærri og dýrari eignir eru illseljanlegar, enda erfitt að fjármagna slík kaup um þessar mundir," að því er segir í Morgunkorni.

Frekari lækkun óhjákvæmileg

„Í því efnahagsástandi sem nú ríkir hér á landi er frekari lækkun á íbúðaverði óhjákvæmileg að okkar mati. Hin mikla uppsveifla undanfarinna ára á íbúðamarkaði hefur orðið til þess að nú þegar ládeyða hefur verið á þessum markaði situr eftir mikill fjöldi nýrra óseldra íbúða á framboðshlið markaðarins sem skapar frekari þrýsting til verðlækkunar.

Að auki er atvinnuleysi vaxandi á næstunni, fólksflótti mun verða nokkur úr landi, ráðstöfunartekjur munu lækka frekar, skattar munu hækka og greiðsluerfiðleikar heimilanna vera talsverðir.

Þessir þættir munu draga enn úr spurn eftir íbúðum. Opinberar spár um þróun húsnæðisverðs á næstu misserum gera ráð fyrir frekari verðlækkunum á fasteignamarkaði. Samkvæmt þeim mun íbúðaverð lækka hátt í 50% að raunvirði frá því að hápunktinum var náð áður en yfirstandandi lægð lýkur á fasteignamarkaði árið 2011. Gangi þessar spár eftir er enn nokkur verðlækkun í pípunum þó að hið mesta sé afstaðið."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka